Um okkur
Bandstrik er íslensk GEO-stofa. Við sjáum til þess að íslensk fyrirtæki birtist þegar fólk spyr gervigreind, ekki bara þegar það leitar á Google.

Stofnandi
Davíð Hansson
Stofnandi og GEO-ráðgjafi
Davíð Hansson er stafrænn markaðsráðgjafi með nær tveggja áratuga reynslu af leitarvélabestun, auglýsingum og vefmálum. Hann rekur Bandstrik og systurfyrirtækið Works, sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu.
Sérsvið hans eru Generative Engine Optimization, leitarvélabestun, Meta Ads og Google Ads. Bandstrik varð til út frá einfaldri athugun: íslensk fyrirtæki sem stóðu sig vel í hefðbundinni leit voru ósýnileg þegar fólk fór að spyrja ChatGPT, Gemini og Perplexity sömu spurninga.
Beint samband: hallo@bandstrik.is
Hvað við gerum
- GEO-úttekt
- Greining á stöðu fyrirtækisins í gervigreindarleit: aðgengi gervigreindar að vefnum, skipulögð gögn, llms.txt, tilvitnanahæfni efnis, traustsmerki og staða á helstu gervigreindarvélum.
- GEO-aðgerðir
- Lagfæring á vef, uppbygging tilvitnanahæfs efnis og skipulagðra gagna, og styrking stafrænna fótspora fyrirtækisins.
- Mæling
- Regluleg vöktun á því hvort og hvernig gervigreind vísar í fyrirtækið, svo hægt sé að sjá hvað aðgerðirnar skila.
Bandstrik er rekið af Eitthvað slf., kt. 610325-0330, Langholtsvegur 60, 104 Reykjavík. Þjónustan er á íslensku og markaðssvæðið er Ísland.