Bandstrik aðstoðar þig við að birtast á ChatGPT, Gemini, Claude og víðar

Birtist þú í svörunum?

ChatGPTGoogle GeminiPerplexityClaudeMicrosoft CopilotAI Overviews

Leitin er að breytast. Svörin líka.

Sífellt fleiri viðskiptavinir spyrja ChatGPT, Gemini eða Perplexity í stað þess að fletta upp á leitarvélum. Samkvæmt spá Gartner dregst hefðbundin leit saman um 25 prósent fyrir árið 2026. Gervigreindin svarar fyrirspurnum beint og nefnir aðeins örfá fyrirtæki í hverju svari, restin sést hvergi. Þegar einhver spyr hver besti kosturinn sé, fyrir ákveðinni vöru eða þjónustu, fær hann yfirleitt eitt til þrjú svör, aldrei tíu tengla til að vafra í gegnum, hvað þá margar síður.

Ef gervigreindin þekkir ekki fyrirtækið þitt ertu einfaldlega ekki með, ekki á blaðsíðu tvö, ekki neðar í listanum: hvergi. Hefðbundin leitarvélabestun ein og sér dugar ekki lengur til að tryggja sýnileika, því GEO krefst annars konar undirbúnings: opins aðgengis fyrir gervigreindarvélar, skipulagðra gagna á vefsíðunni og efnis sem hægt er að vitna beint í.

Hvað er GEO?

GEO, eða Generative Engine Optimization, kallast sú aðferð að gera fyrirtæki sýnilegt í svörum gervigreindar. Sífellt fleiri spyrja ChatGPT, Gemini, Claude og Perplexity í stað þess að fletta leitarniðurstöðum. Samkvæmt spá Gartner dregst hefðbundin leit saman um 25 prósent fyrir árið 2026. Svarið sem gervigreindin gefur ræður því hvaða fyrirtæki viðskiptavinurinn velur.

GEO byggir á þremur stoðum. Í fyrsta lagi þarf vefurinn að vera opinn og læsilegur fyrir gervigreindarvélar. Í öðru lagi þarf efnið að svara spurningum beint, með skýrum skilgreiningum og tölfræði sem hægt er að vitna í. Að lokum þarf fyrirtækið sterka entity-nærveru: skipulögð gögn, umtal og traustar heimildir sem staðfesta hver stendur á bak við vefinn.

Fá íslensk fyrirtæki hafa tekið GEO föstum tökum. Þau sem byrja núna ná forskoti sem erfitt verður að vinna upp síðar. Bandstrik er íslensk GEO-stofa. Greining okkar sýnir til dæmis á nokkrum sekúndum hvar vefurinn þinn stendur.

Lestu meira um GEO

Svona vinnum við

01

Úttekt

Við greinum hvar fyrirtækið þitt stendur í AI-leit í dag: sýnileiki, aðgengi gervigreindar að vefnum, skipulögð gögn og umtal.

02

Aðgerðir

Við lagfærum vefinn, byggjum upp efni sem gervigreind getur vitnað í og styrkjum stafræn fótspor fyrirtækisins.

03

Mæling

Við fylgjumst með hvort og hvernig gervigreindin vísar í fyrirtækið þitt og sýnum þér þróunina svart á hvítu.

Hvað er AI sýnileiki?

AI sýnileiki er mælikvarði á það hversu vel fyrirtæki birtist og er vitnað í það í svörum gervigreindar. Samkvæmt OpenAI nota yfir 800 milljónir manns ChatGPT í hverri viku og Google segir AI Overviews ná til yfir tveggja milljarða notenda í hverjum mánuði. Í hverju svari nefnir gervigreindin samt aðeins örfá fyrirtæki.

Bandstrik mælir AI sýnileika íslenskra fyrirtækja með ókeypis úttekt og bætir hann síðan með markvissum aðgerðum.

Lestu meira um AI sýnileika

Birtist fyrirtækið þitt í niðurstöðum gervigreindar?

Við skoðum vefinn þinn, aðgengi gervigreindar að honum og hvernig ChatGPT, Gemini, Perplexity og fleiri tala um fyrirtækið þitt. Þú færð skýrslu með niðurstöðum og næstu skrefum, þér að kostnaðarlausu.

Fáðu fría GEO-úttekt

Hver stendur á bak við þetta?

Á bakvið Bandstrik er nær tveggja áratuga reynsla af leitarvélabestun, auglýsingum og vefmálum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki. Bandstrik er systurfyrirtæki Works, sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu.