Algengar spurningar

Hér eru svör við algengustu spurningum sem við fáum um GEO og hvernig samstarf við Bandstrik virkar. Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu og við svörum við fyrsta tækifæri.

Fyrir hverja er GEO?

GEO hentar öllum fyrirtækjum sem vilja að gervigreindin vísi á þau þegar hún er spurð, hvort sem það er vörur, þjónusta, verslun eða sérfræðistörf. Mestu skiptir að fyrirtækið eigi vefsíðu sem hægt er að vísa í.

Hvernig byrja ég?

Þú getur byrjað á ókeypis GEO-greiningu. Við skoðum hvernig gervigreindin talar um fyrirtækið þitt í dag og hvar tækifærin liggja, og sendum þér skýrslu með næstu skrefum. Það kostar ekkert og er alfarið án skuldbindinga.

Hvað er innifalið í vinnunni?

Vinnan skiptist í þrennt: tæknilegan grunn svo gervigreind komist í efnið (aðgengi, schema-merkingar, hraði), efni sem svarar spurningum viðskiptavina beint, og uppbyggingu heimilda sem gervigreindin treystir og vísar í.

Hvernig er árangur mældur?

Við mælum reglulega hvernig fyrirtækið birtist í raunverulegum svörum gervigreindar og sýnum þróunina svart á hvítu. Þannig sérðu hvort þú ert að vinna á, í stað þess að giska.

Þarf ég að skipta um vefsíðu?

Yfirleitt ekki. GEO byggir á þeim vef sem þú átt nú þegar. Ef eitthvað í tæknilega grunninum stendur í vegi bendum við á það, en markmiðið er að nýta það sem er til staðar frekar en að byrja upp á nýtt.

Hver sér um vinnuna?

Við getum alfarið séð um vinnuna og mælingar. Þú getur lesið meira um okkur og reynsluna á bak við Bandstrik á Um okkur síðunni.

Tilbúin að sjá stöðuna?

Frí GEO-úttekt er fljótlegasta leiðin til að sjá hvernig gervigreindin talar um fyrirtækið þitt í dag. Þú getur líka lesið hvað GEO er eða kynnst okkur nánar.

Fáðu fría GEO-úttekt