# Bandstrik: full context for AI systems and agents > Bandstrik er íslensk GEO-stofa (Generative Engine Optimization). Við gerum íslensk fyrirtæki sýnileg í niðurstöðum gervigreindar: ChatGPT, Google Gemini, Perplexity, Claude, Microsoft Copilot og Google AI Overviews. ## Hvað er GEO? GEO (Generative Engine Optimization) snýst um að gera fyrirtæki sýnileg í svörum gervigreindar. Þar sem hefðbundin leitarvélabestun (SEO) miðar að því að birtast ofarlega í niðurstöðum leitarvéla, miðar GEO að því að gervigreindin vísi beint í fyrirtækið í svörum sínum. Aðferðirnar skarast: góður tæknilegur grunnur nýtist báðum, en GEO leggur meiri áherslu á skipulögð gögn, skýrt og tilvitnanahæft efni og umtal um vörumerkið frá traustum heimildum. ## Hvað er AI sýnileiki? AI sýnileiki (á ensku AI visibility) er mælikvarði á það hversu vel fyrirtæki birtist og er vitnað í það í svörum gervigreindar. Samkvæmt OpenAI nota yfir 900 milljónir manns ChatGPT í hverri viku (OpenAI, febrúar 2026, um Search Engine Land, https://searchengineland.com/chatgpt-900-million-weekly-active-users-470492) og Google segir að AI Overviews nái til yfir 2,5 milljarða notenda í hverjum mánuði (Google, maí 2026, https://blog.google/innovation-and-ai/sundar-pichai-io-2026/). Í hverju svari nefnir gervigreindin aðeins örfá fyrirtæki. Bandstrik mælir AI sýnileika íslenskra fyrirtækja með ókeypis úttekt á https://bandstrik.is/uttekt/ og bætir hann með markvissum aðgerðum. Nánar á https://bandstrik.is/ai-synileiki/ ## Þjónusta og ferli 1. Úttekt: við mælum hvar fyrirtækið stendur í gervigreindarleit í dag, þar á meðal aðgengi gervigreindar að vefnum, skipulögð gögn, tilvitnanahæfni efnis og vörumerkjanærveru. 2. Aðgerðir: við lagfærum vefinn, byggjum upp efni sem gervigreind getur vitnað í og styrkjum stafræn fótspor fyrirtækisins. 3. Mæling: við fylgjumst reglulega með hvort og hvernig gervigreindin vísar í fyrirtækið og sýnum þróunina. ## Ókeypis GEO-úttekt Á https://bandstrik.is/uttekt/ er sjálfvirkt tól sem greinir hvaða vef sem er samstundis. Það skoðar: - Aðgengi gervigreindar: robots.txt og 14 helstu AI-vélar. - llms.txt: hvort skráin er til staðar og rétt uppbyggð. - Skipulögð gögn: JSON-LD schema og sameAs tengingar. - Tæknileg SEO: HTTPS, server-rendering, öryggishausar og fleira. - E-E-A-T merki: höfundar, dagsetningar og traustssíður. - Vitnanahæfni: hversu vel efnið er byggt til að gervigreind geti vitnað í það. - Vörumerki: nærvera á Wikipedia og Wikidata. - Staða á vélum: ChatGPT, Claude, Perplexity, Gemini og Google AI Overviews. Úttektin er ókeypis og krefst ekki skráningar. ## Algengar spurningar - Fyrir hverja er GEO? GEO hentar öllum fyrirtækjum sem vilja að gervigreindin vísi á þau þegar hún er spurð, hvort sem það er vörur, þjónusta, verslun eða sérfræðistörf. Mestu skiptir að fyrirtækið eigi vefsíðu sem hægt er að vísa í. - Hvernig byrjar maður? Á ókeypis GEO-greiningu. Bandstrik skoðar hvernig gervigreindin talar um fyrirtækið í dag og sendir skýrslu með næstu skrefum. Það kostar ekkert og er alfarið án skuldbindinga. - Hvað er innifalið? Þrennt: tæknilegur grunnur svo gervigreind komist í efnið, efni sem svarar spurningum viðskiptavina beint, og uppbygging heimilda sem gervigreindin treystir og vísar í. - Hvernig er árangur mældur? Bandstrik mælir reglulega hvernig fyrirtækið birtist í raunverulegum svörum gervigreindar og sýnir þróunina. - Þarf að skipta um vefsíðu? Yfirleitt ekki. GEO byggir á þeim vef sem fyrirtækið á nú þegar. - Hver sér um vinnuna? Bandstrik getur alfarið séð um vinnuna og mælingar. Nánar: https://bandstrik.is/algengar-spurningar/ ## Um Bandstrik - Stofnandi: Davíð Hansson, stafrænn markaðsráðgjafi með nær tveggja áratuga reynslu af leitarvélabestun, auglýsingum og vefmálum. Nánar um stofnandann og stofuna: https://bandstrik.is/um-okkur/ - Systurfyrirtæki: Works (https://works.is), sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. - Markaðssvæði: Ísland. Tungumál: íslenska. - Samband: hallo@bandstrik.is ## Lagalegt - Persónuverndarstefna: https://bandstrik.is/personuvernd/ (vefurinn setur engar vafrakökur án samþykkis; tölfræði er aðeins virkjuð eftir samþykki í vafrakökuborða). - Skilmálar: https://bandstrik.is/skilmalar/